Skrifblinda

Lesblind.is býður upp á námskeið fyrir þá sem eiga við skrifblindu að etja.

Námskeiðið er einstaklingsnámskeið og tekur 5-8 daga.

Það er sniðið að þörfum hvers einstaklings. Að loknu greiningarviðtali er lengd þess og innihald skipulagt nánar. Námskeiðið tekur styttri tíma ef viðkomandi hefur áður farið í Davis lesblinduleiðréttingu. Oft dugir lesblinduleiðréttingin ein og sér til þess að leiðrétta skriftarörðugleikana.

Innifalið í námskeiðinu er þjálfun stuðningsaðila og nauðsynleg námsgögn sem nemandinn þarf til þess að vinna heimavinnuna.

Námskeiðið er fyrir 8 ára og eldri.

Meira um skrifblindu...